Rithöfundur Íslands

Út er komin 60. bókin í ritröðinni um íslensk fræði (Studia islandica) sem Bókmenntafræðistofnun Háskóla Íslands gefur út.

Að þessu sinni er það bókin Rithöfundur Íslands: Skáldskaparfræði Hallgríms Helgasonar eftir Öldu Björk Valdimarsdóttur. Ritstjóri er Gunnþórunn Guðmundsdóttir.

Listamaðurinn og rithöfundurinn Hallgrímur Helgason hefur verið áberandi í íslensku menningar- og fjölmiðlalífi. Hann hefur sent frá sér ljóð, skáldsögur og leikrit, auk fjölmargra greina og pistla um margvísleg málefni sem lýsa sterkum skoðunum hans á íslenskri menningu og samfélagi. Í þessu verki er fjallað um skáldskaparferil hans og sjónum þá einkum beint að skáldsögunum Þetta er allt að koma, 101 Reykjavík, Höfundi Íslands, Roklandi og Herra alheimi, auk þess sem vikið er að ljóðasafni hans og leikritinu Skáldanótt. Verkin eru skoðuð í ljósi hugmynda um höfundarímyndina, bókmenntahefðina og karnívalið svo fátt eitt sé nefnt, auk þess sem fjölbreytileg staða Hallgríms í menningarlífinu er könnuð.