Maður undir himni - trú í ljóðum Ísaks Harðarsonar

Verkum Ísaks hafði ég kynnst lítillega á unglingsárum. Ég keypti Ræflatestamentið (1984) á bókamarkaði. Myrkrið og kaldhæðnin í henni skrámaði verulega hreina og teflonhúðaða heimsmynd mína, ég hafi satt að segja aldrei lesið bók sem var jafn logandi af hatri út í guð og mannfélagið. Næst las ég Veggfóðraðan óendanleika (1986) og skildi ekki neitt í neinu og sannfærðist um að skáldið hefði brjálast endanlega.

Maður undir himni fjallar um trú og guðsmynd í ljóðum Ísaks Harðarsonar sem er meðal fremstu ljóðskálda þjóðarinnar.

Maður undir himni er þriðja bókin í Ungum fræðum en í ritröðina eru valdar framúrskarandi BA-ritgerðir nemenda í íslenskum bókmenntum og almennri bókmenntafræði við Háskóla Íslands.

Bókin Maður undir himni er unnin upp úr BA-ritgerð Andra Snæs Magnasonar, ljóðskálds.

Höfundur: Andri Snær Magnason
Útgáfuár: 1999
Blaðsíðufjöldi: 102
ISBN:9979-54-368-X