Listin að lesa

Í þessu bráðskemmtilega og fróðlega riti lýsir Árni Bergmann margs konar lífi í bókum. Hann veltir fyrir sér hvað stýrir vali lesenda á skáldverkum og hverjar væntingar þeir gera til bóka.

Sjaldnast er mikill friður um skáldskapinn og skáldin. En baráttan um bækurnar snýst ekki aðeins um ótta valdhafa við áhrifamátt bókmennta eða þá kröfu að skáldverkum sé skipað í flokka eftir mikilvægi, því höfundur lýsir einnig á gamansaman hátt stormasamri sambúð rithöfunda við gagnrýnendur og ýmsa strauma í bókmenntafræði.

Höfundur gerir grein fyrir sjálfum sér sem bókaormi frá barnsaldri, sem bókmenntanema í Rússlandi, sem gagnrýnanda og kennara í bókmenntum og loks sem starfandi rithöfundi og þýðanda.

Ég hefi komið úr öllum áttum að listinni að lesa og skrifa, segir Árni sjálfur í bók sem er skrifuð af þekkingu og mikilli frásagnargleði.

Höfundur: Árni Bergmann
Ritstjóri: Guðni Elísson
Útgefandi: Bókmenntafræðistofnun Háskóla Íslands
ISBN: 9979-54-653-0
Blaðsíðufjöldi: 223
Leiðbeinandi verð: 3.500 kr.