Davíð Stefánsson. Ljóð: Úrval

Davíð Stefánsson. Ljóð: Úrval. Ólafur Briem bjó til prentunar. Rannsóknastofnun í Bókmenntafræði og Menningarsjóður. Reykjavík 1977. 257 bls.

Við val þeirra hundrað kvæða, sem eru í þessari útgáfu, hafði Ólafur Briem, sem bjó bókina til prentunar, einkum tvennt í huga. Í fyrsta lagi er það hans eigin smekkur og í öðru lagi hefur hann reynt að láta koma fram sem flestar hliðar á ljóðagerð Davíðs. Til grundvallar hafa verið lagðar þær útgáfur sem Davíð gekk síðast frá sjálfur. En kvæðin úr Síðustu ljóðum, sem fyrst birtust að Davíð látnum, hefur Ólafur Briem borið saman við handrit Davíðs sjálfs.
Greinamerkjasetningu og stafsetningu Davíðs er haldið að öðru leyti en því að ekki er skrifuð z. Þá hefur Ólafur tekið sér það bessaleyfi að birta þrjú kvæði nokkuð stytt og er þess getið í athugasemdum við hvert þeirra um sig.

Höfundur: Davíð Stefánsson

Blaðsíðufjöldi: 257

ISBN:9979-54-355-8