Af erlendri rót

Mikill vöxtur var í útgáfu prentmiðla á síðustu áratugum nítjándu aldar og í upphafi þeirrar tuttugustu. Þessari útgáfu fylgdi stóraukin þýðingastarfsemi og birtist í tímaritum og blöðum ákaflega fjölskrúðugt úrval af þýddu efni. Hér voru á ferð skáldsögur í formi neðanmálssagna, smásögur og ljóð eftir heimsþekkta sem lítt þekkta höfunda víða að úr heiminum auk margs konar hagnýtra texta af ýmsum gerðum.

Í þessu verki er þetta efni skráð og flokkað í fyrsta sinn svo loks er hægt að gera sér mynd af þessu víðfeðma þýðingarstarfi. Hér má sjá hvaða höfundar voru þýddir, hvers konar textar voru vinsælastir til þýðingar og í mörgum tilvikum hverjir voru mikilvirkustu þýðendurnir. Skránni fylgir ítarlegur inngangur um þýðingar tímabilsins.

Höfundur er Svanfríður Larsen.

Ritið er hið 59. í ritröðinni Studia Islandica. Það er 284 bls. og er ritstjóri Gunnþórunn Guðmundsdóttir. Útgefandi er Bókmenntafræðistofnun Háskóla Íslands. Viðmiðunarverð er 3.490 kr.
ISBN 9979-9774-1-8
ISBN-13 978-9979-9774-1-4