Header Paragraph

Lars Lönnroth heiðursdoktor við Íslensku- og menningardeild

Image
Lars Lönnroth tekur við heiðursdoktorsnafnbót

Dr. Lars Lönnroth var sæmdur heiðursdoktorsnafnbót við Íslensku- og menningardeild Háskóla Íslands í gær.

Lars Lönnroth er prófessor emeritus við Gautaborgarháskóla en hefur einnig starfað við Álaborgarháskóla og Berkeleyháskóla í Kaliforníu. Hann er frumkvöðull á sviði íslenskra fræða og innleiddi þar ýmsar nýjar hugmyndir frá því hann hóf sinn feril, m.a. um tengsl íslenskra fornbókmennta við evrópska miðaldamenningu, um flutning kveðskapar og sagna. Hann er einna þekktastur fyrir rannsóknir sínar á Brennu-Njálssögu. Um hana skrifaði hann rit sem kom út 1976 og er enn í fullu gildi. Hann hefur unnið mikið starf við útbreiðslu íslenskrar menningar um allan heim, meðal annars með þýðingum sínum. Auk heldur er hann mikill og einlægur Íslandsvinur, tíður gestur hér og gamall nemandi við skólann. Bæði fyrir þessi samskipti og fræðistörf sín er hann verðugur heiðursdoktor við Háskóla Íslands.

Torfi Tulinius, forseti Íslensku- og menningardeildar, stjórnaði athöfninni sem fram fór í Hátíðasal í Aðalbyggingu Háskóla Íslands. (Smellið hér til að skoða myndir frá athöfninni).

Image