Header Paragraph

Fyrirlestraröð: Höfundur og ritstjóri

Image
Image

Ritlist við Íslensku- og menningardeild Háskóla Íslands og Bókmennta- og listfræðastofnun Háskóla Íslands efna til fyrirlestraraðar þar sem nýútkomnar bækur verða kynntar um leið og samvinna höfundarins og ritstjórans verður könnuð, en samband höfundar og ritstjóra getur verið margslungið og haft óvænt áhrif á verkið sem unnið er að.

Rithöfundurinn Hallgrímur Helgason og Æsa Guðrún Bjarnadóttir, ritstjóri hjá Forlaginu, ríða á vaðið og spjalla um samstarf sitt í kringum nýja skáldsögu Hallgríms – 60 kíló af kjaftshöggum. Bókin er framhald af verðlaunabókinni 60 kíló af sólskini sem kom út árið 2018. Höfundur tekur upp þráðinn að þremur árum liðnum í Segulfirði.

Spjall Hallgríms og Æsu fer fram í stofu 008 í Veröld, húsi Vigdísar þriðjudaginn 26. október kl. 12–13. Viðburðurinn er opinn almenningi og er aðgangur ókeypis.